29.06.05 - 13:13
Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Viðar Mete í Keflavík (Staðfest)

Keflvíkingar fá góðan liðsstyrk

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Keflvíkingar fá góðan liðsstyrk

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Guðmundur Viðar Mete fyrrum unglingalandsliðsmaður Íslands er á leið til bikarmeistara Keflavíkur en leikmaðurinn kemur til landsins um helgina og skrifar undir samning við félagið. Guðmundur Viðar hefur þegar komist að samkomulagi við félagið en þetta staðfesti Kristján Guðmundsson þjálfari liðsins við Fótbolta.net í dag.
Guðmundur er varnarmaður og hefur verið á mála hjá Norrköping í sænsku 1. deildinni. Hann missti af nánast öllu síðasta tímabili vegna meiðsla.
Guðmundur er 24 ára gamall og mun án efa styrkja varnarlínu Keflvíkinga til muna en liðið hefur fengið á sig 18 mörk og í fyrstu átta umferðum Landsbankadeildarinnar. Guðmundur hóf ferilinn hjá Malmö í Svíþjóð árið 2000.
Keflavík er í þriðja sæti deildarinnar með 14 stig, fjórum stigum á eftir Val sem er í öðru sæti.