29.06.05 - 11:55
Hafliði Breiðfjörð
Kezman til Atletico (Staðfest)




Mateja Kezman hefur gengið frá félagaskiptum frá Chelsea til Atletico Madrid. Kezman sem er 26 ára gamall gekk í raðir Chelsea frá PSV Eindhoven en kaupverðið var 5 milljónir punda í fyrra.
Talið er að hann hafi skrifað undir þriggja ára samning við félagið en hann skoraði aðeins fjögur mörk í 24 leikjum fyrir Chelsea.
Kezman gerði garðinn frægan fyrst með Partizan Belgrade áður en hann gekk í raðir PSV Eindhoven árið 2000. Á fjórum árum í Hollandi skoraði hann 105 mörk.
Kezman gerði garðinn frægan fyrst með Partizan Belgrade áður en hann gekk í raðir PSV Eindhoven árið 2000. Á fjórum árum í Hollandi skoraði hann 105 mörk.
