Paul Hirst og Paul Joyce hjá Times halda því fram að skoski miðjumaðurinn Scott McTominay sé mikilvægur partur af áformum Erik ten Hag nýs knattspyrnustjóra Manchester United.
Man Utd hefur ekki borist tilboð í McTominay en ef áhugasamt félag reynir að kaupa hann þá munu Rauðu djöflarnir hafna því.
Ten Hag telur McTominay tilvalinn leikmann til að sitja fyrir framan varnarlínuna í leikkerfinu sem hann hyggst spila hjá Man Utd og er markmiðið að fullkomna miðjuna með Frenkie de Jong og Christian Eriksen.
Þeir myndu bætast við þokkalega álitlegan hóp miðjumanna sem eru hjá Man Utd fyrir. Fred, Donny van de Beek og Bruno Fernandes geta allir gert tilkall til byrjunarliðssætis undir stjórn Ten Hag.
Athugasemdir