Fotbolti.net
29.07.05 - 07:08

Ailton til Besiktas (Staðfest)

Ailton til Besiktas (Staðfest)
Canon
Brasilíski framherjinn Ailton hefur gengið frá samningi við Tyrkneska úrvalsdeildarliðið Besiktas. Hann var aðeins hjá þýska liðinu Schalke í eina leiktíð áður en hann ákvað að söðla um og skoða lífið í Tyrklandi en hann skoraði 14 mörk fyrir Schalke á síðustu leiktíð.
"Þetta var síðasta skjalið sem var eftir" sagði Rudi Assuer yfirmaður íþróttamála hjá Schalke eftir að Ailton skrifaði undir. "Allt gekk áfallalaust fyrir sig. Ailton samþykkti alla okkar skilmála og við óskum honum velfarnaðar hjá nýja liðinu."

Ailton er 32 ára gamall og sló í gegn hjá Werder Bremen þar sem hann skoraið 28 mörk á tímabilinu 2003/2004 þegar Bremen varð Þýskalandsmeistari sem og bikarmeistari. Framganga hans varð til þess að Ailton varð fyrsti útlendingurinn fyrir alinu sem leikmaður ársins í Þýskalandi.

Kaupverðið á Ailton eru 3 milljónir Evra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.