29.07.05 - 11:08
Shaka Hislop kominn aftur til West Ham (Staðfest)

Markmaðurinn Shaka Hislop er kominn aftur til West Ham eftir að hafa farið frá Portsmouth í frjálsri sölu. Aðeins eru þrjú ár frá því Hislop fór frá Upton Park en þessi Trinidad og Tobagobúi er orðinn 36 ára gamall og mun berjast við Roy Carroll um markmannsstöðuna á komandi tímabili.
"Það er frábært að vera kominn aftur til West Ham" sagði Hislop við hina margrómuðu heimasíðu stellargroup.co.uk. "Ég átti fjögur góð ár hérna, mjög góð ár. Við vorum með gott lið líka, enduðum í efri helmingi deildarinnar í þremur tímabilum af fjórum.
Núna hlakka ég bara til að komast aftur í skónna og keppa um sæti í liðinu. Það eru góðir markmenn fyrir hérna og ég verð að vera á tánnum en ég er viss um geta mína og ég veit að ég er enn nógu góður markmaður til að geta spilað í Úrvalsdeildinni."