Fotbolti.net
29.07.05 - 13:57
Magnús Már Einarsson

Keflavík samdi við Samúelsen (Staðfest)

Keflavík samdi við Samúelsen (Staðfest)
Canon

Mynd: Keflavík.is - Jón Örvar Arason

Færeyski leikmaðurinn Símun Samuelsen hefur gert þriggja ára samning við Keflavík en þetta staðfesti Kristján Guðmundsson þjálfari liðsins við Fótbolti.net í dag.
Símun sem kemur frá VB í Færeyjum hefur verið til reynslu hjá Keflavík að undanförnu en hann er hálfíslenskur og er bróðir hans Jón í 2.flokki hjá Kefvíkingum.

Símun er að sögn Kristjáns sóknarmaður sem getur bæði leikið frammi eða á köntunum og er þetta kröftugur og áræðinn leikmaður. Hann hefur þegar fengið leikheimild með Keflvíkingum og getur því leikið með liðinu gegn Þrótti í Landsbankadeildinni þann 7.ágúst næstkomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.