Fotbolti.net
29.07.22 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Everton í viðræðum um að fá Gueye aftur frá PSG

Everton í viðræðum um að fá Gueye aftur frá PSG
Canon

Mynd: Getty Images

Fabrizio Romano greinir frá því að Everton sé komið í viðræður við Frakklandsmeistara Paris Saint-Germain um senegalska miðjumanninn Idrissa Gana Gueye.

Gueye var lykilmaður hjá Everton þegar PSG ákvað að festa kaup á honum sumarið 2019.

Gueye hefur spilað 111 leiki á þremur árum í París, þar á meðal 33 á síðustu leiktíð, en félagið telur sig ekki hafa not fyrir hann lengur og vill selja hann sem fyrst.

Gueye á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við PSG og er mögulegt að PSG þurfi að borga part af launum miðjumannsins til að selja hann.

PSG borgaði um 25 milljónir punda fyrir Gueye fyrir þremur árum en leikmaðurinn verður 33 ára í september og mun ekki kosta mikið fyrir Everton.

Gueye var hjá Everton í þrjú ár og spilaði 108 leiki fyrir félagið, þar af 99 í ensku úrvalsdeildinni. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.