29.07.26
Nýr kafli hjá Chelsea: Alonso, metkaup og breytt stefna
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Þrátt fyrir að Chelsea hafi lyft nokkrum titlum, þar á meðal heimsmeistarabikar félagsliða, er óhætt að segja að síðustu ár hafi verið allt annað en auðveld fyrir stuðningsmenn félagsins. Frá því BlueCo tók við eignarhaldinu hjá Chelsea árið 2022 hefur félagið eytt gríðarlegum fjárhæðum á leikmannamarkaðnum, skipt reglulega um þjálfara og sætt harðri gagnrýni fyrir stefnu sína.
Í sumar virðist þó aðeins öðruvísi stemning ríkja í kringum Stamford Bridge. Xabi Alonso hefur tekið við sem stjóri, félagið hefur lagt áherslu á að styrkja sig með leikmönnum sem eiga að geta skilað árangri strax og í fyrsta sinn í langan tíma virðast margir stuðningsmenn hafa trú á því að verkefnið sé komið á rétta braut.
Fotbolti.net ræddi við tvo harða Chelsea-stuðningsmenn, Jóhann Má Helgason og Harald Örn Haraldsson, um nýja stjórann, breytingarnar hjá félaginu, eigendurna og væntingarnar fyrir komandi tímabil.