29.07.26 - 18:00
Elvar Geir Magnússon
Pochettino ætlar að stýra Bandaríkjunum á HM 2030

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Guardian greinir frá því að Mauricio Pochettino og bandaríska fótboltasambandið séu að ganga frá nýjum samningi sem gildir yfir HM 2030.
Pochettino hefur verið landsliðsþjálfari Bandaríkjanna síðan í september 2024. Liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum á HM í sumar.

Gengi Bandaríkjanna undir stjórn Pochettino hefur verið nokkuð sveiflukennt. Liðið tapaði illa 4-1 gegn Belgíu í 16-liða úrslitum HM.
Þrátt fyrir það þá mun Argentínumaðurinn fá umtalsverða launahækkun í nýjum samningi samkvæmt heimildum Guardian.
Síðan Pochettino tók við Bandaríkjunum hefur hann reglulega verið orðaður við endurkomu í félagsliðabolta og meðal annars verið fjallað um áhuga frá hans fyrrum félagi Tottenham og frá Real Madrid.