Fotbolti.net
29.07.26 - 13:14
Ívar Björgvinsson

Líklegt byrjunarlið Víkings í Meistaradeildinni

Nikilaj Hansen hefur verið sjóðandi heitur í Evrópuleikjunum.

Nikilaj Hansen hefur verið sjóðandi heitur í Evrópuleikjunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 17:30 hefst síðari leikurinn í einvígi Víkings og Hapoel Be'er Sheva í 2. umferð í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Víkingar leiða einvígið eftir að hafa unnið fyrri leikinn, sem fór fram í Víkinni, 2-1 fyrir rúmri viku síðan. Leikurinn fer fram í Ungverjalandi að sökum ástandsins í Ísrael en hér er um 30 stiga hiti en leiktíminn á staðartíma er 19:30. 

Myndaveisla: Víkingur æfði á keppnisvellinum í Ungverjalandi
TENGT EFNI

Myndaveisla: Víkingur æfði á keppnisvellinum í Ungverjalandi

Lestu um leikinn: Hapoel Be'er Sheva 0 - 0 Víkingur R.

Nikolaj Hansen hefur verið að glíma við ökklameiðsli sem hann varð fyrir í seinni leik Víkings gegn Györ fyrir um tveimur vikum síðan. Niko spilaði ekki næsta leik þar á eftir, sem var tapleikur gegn Þór Akureyri en var mættur í byrjunarliðið í síðustu viku gegn Hapoel þar sem hann skoraði bæði mörk liðsins. Niko var ekki með gegn Keflavík síðastliðinn föstudag og hefur æft lítið sem ekkert síðustu daga. Niko ferðaðist með liðinu til Ungverjalands en við spáum því að hann verði ekki í byrjunarliðinu í kvöld.

Tarik Ibrahimagic hefur fengið takmarkaðan spilatíma undanfarið en hefur reynst Víkingum drjúgur í Evrópuleikjum þar sem hann hefur oft verið í byrjunarliðinu í útileikjum, sem dæmi gegn Györ fyrir tveimur vikum og gegn Panathinaikos þegar Víkingar léku í Sambandsdeildinni. Sveinn Margeir gerir einnig tilkall að sæti í byrjunarliðinu þar sem hann er sá sem hefur mesta reynslu að spila sem framherji á bekk Víkings og gæti því leyst hlutverk Niko í dag.

Vörn Víkinga hefur verið mjög sannfærandi á tímabilinu og er sterkasta varnarlínan nokkuð sjálfvalin. Allar líkur eru á því að Sölvi stilli upp sömu varnarlínu og í fyrri leiknum gegn Hapoel þar sem Helgi Guðjóns, Gunnar Vatnhamar, Oliver Ekroth og Karl Friðleifur mynda fjögurra manna línu. 

Við spáum því einnig að miðjan verði óbreytt þar sem Gylfi Sig og Daníel Hafsteinsson verði saman þar og Óskar Borgþórs og Valdimar Þór verða sitthvorum megin við þá.


Líklegt byrjunarlið Víkings


Tarik hefur reynslu að spila stóru Evrópuleikina.

Tarik hefur reynslu að spila stóru Evrópuleikina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Margeir gæti komið inn í byrjunarliðið.

Sveinn Margeir gæti komið inn í byrjunarliðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.