Fotbolti.net
29.07.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Af hverju fór Kjartan Henry út í umboðsmennsku?

Kjartan Henry Finnbogason.

Kjartan Henry Finnbogason.

Canon

Mynd: Icelandic Agency

Ný nöfn hafa verið að bætast í hóp íslenskra umboðsmanna á undanförnum misserum. Þar á meðal eru fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaðurinn Kjartan Henry Finnbogason.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 27. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Kjartan Henry segist ekki hafa séð fyrir sér að hann myndi starfa sem umboðsmaður þegar leikmannaferlinum lyki. Hann hafi, líkt og flestir fótboltamenn verið algjörlega upptekinn af boltanum á meðan ferillinn stóð sem hæst.

„Nei, ég var ekki búinn að hugsa lengi um þetta. Það er þannig með flesta fótboltamenn að á meðan þeir eru í þessu hugsa þeir ekki um neitt annað en fótbolta. Það er bara þannig. Ég held að það sé algengt hjá fótboltamönnum að þeir viti ekki endilega alveg hvað þeir ætla að verða þegar þeir eru orðnir stórir. Þeir þurfa að finna sér sína fjöl eftir ferilinn," segir Kjartan.

„Óli Garðars er búinn að vera minn umboðsmaður síðan ég var 16 ára og er einn heiðarlegasti og pottþéttasti maður sem ég þekki. Hann leitaði til mín um það leyti sem ég var að flytja heim, svona óformlega. Hann var að leitast eftir liðsstyrk og einhverjum til að koma með eitthvað annað að borðinu. Mér fannst það strax mjög áhugavert en mig langað líka að prófa hina hliðina á sjálfum fótboltanum, það er að fara í þjálfun. Á þeim stutta tíma sem ég þjálfaði lærði ég mjög margt sem ég tel að gagnist mér í dag þegar ég er að ræða við leikmenn sem eru til dæmis kannski ekki að lesa þjálfarann sinn og svo framvegis."

Kjartan Henry var aðstoðarþjálfari FH í eitt tímabil eftir að skórnir fóru upp á hillu en fór svo út í umboðsmennsku.

„Þegar ljóst var að við Heimir yrðu ekki áfram hjá FH buðust mér ýmis þjálfarastörf en ég ákvað á þeim tímapunkti, í samráði við fjölskyldu mína, að skoða alvarlega samstarf með Óla. Við Óli áttum góðar samræður og settum okkur skýr markmið. Við gengum svo frá kaupum á helmingshlut mínum í félaginu og núna er ég kominn á fullt inn í þetta með honum og reyni að láta gott af mér leiða."

Kjartan flutti á dögunum til Kaupmannahafnar þar sem hann byggir meðal annars á tengslaneti sínu í Danmörku og víðar á Norðurlöndum.

„Þetta er búið að vera skemmtilegt. Það er auðvitað skemmtilegast þegar maður er að fara út með leikmönnum og fjölskyldum þeirra og sjá þá fá draum sinn uppfylltan. Það er líka ómetanlegt í þessu starfi hvað maður fær tækifæri til að mynda góð tengsl við alla þá aðila sem standa næst leikmanninum. Foreldra, systkini og jafnvel kærustur. Þetta er auðvitað mikilvægasta fólkið í lífi leikmannsins. Það veit ég af eigin raun. Konan mín fylgdi mér allan ferilinn og þurfti oft að stíga upp þegar á móti blés. Ég naut reyndar líka góðs af því að hún er lögfræðingur, eins og Óli. Ég var því extra heppinn með tvo harðduglega lögfræðinga í mínu teymi," segir Kjartan.

„Ég var nú að flytja til Kaupmannahafnar og sit hér í Danmörku með fjölskyldunni. Ég spilaði hér í sjö ár og þekki ótrúlega marga og er með stórt tengslanet. Það kemur mér alltaf á óvart þegar ég skoða þjálfara eða þá sem eru á bak við tjöldin hjá klúbbunum, þá spilaði ég annað hvort með þeim eða á móti. Það er gaman að endurnýja kynnin, kíkja í kaffi, fara yfir málin og segja þeim frá efnilegum íslenskum leikmönnum."

Á bak við tjöldin hjá nýrri kynslóð íslenskra umboðsmanna
TENGT EFNI

Á bak við tjöldin hjá nýrri kynslóð íslenskra umboðsmanna

Kjartan Henry var aðstoðarþjálfari FH í eitt tímabil.

Kjartan Henry var aðstoðarþjálfari FH í eitt tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Öflugur leikmaður á sínum tíma.

Öflugur leikmaður á sínum tíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Það er gaman að endurnýja kynnin, kíkja í kaffi, fara yfir málin og segja þeim frá efnilegum íslenskum leikmönnum."

,,Það er gaman að endurnýja kynnin, kíkja í kaffi, fara yfir málin og segja þeim frá efnilegum íslenskum leikmönnum."

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.