29.07.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
Timber yfirgaf æfingabúðir Arsenal

Timber er fyrsti kostur Arsenal í stöði hægri bakvarðar.

Mynd: EPA

Jurrien Timber hefur yfirgefið æfingabúðir Arsenal á Spáni og er farinn aftur til London. Ástæðan eru nárameiðslin sem gerðu það að verkum að hann missti af HM.
Hollenski landsliðsmaðurinn missti út tvo mánuði í lok tímabilsins vegna ökklameiðsla en var mættur aftur í tapleikinn gegn Paris Saint-Germain í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Nárameiðsli gerðu það svo að verkum að hægri bakvörðurinn gat ekki spilað á HM.

Heimildarmaður breska ríkisútvarpsins segir að endurkoma hans til Lundúna sé hluti af endurhæfingarferlinu en ekki sé um að ræða bakslag. Timber muni væntanlega snúa aftur til Spánar til móts við hópinn.
Timber er fyrsti kostur Arsenal í stöði hægri bakvarðar og hjálpaði liðinu að hampa Englandsmeistaratitlinum á síðasta tímabili.
Arsenal mætir Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn þann 16. ágúst og leikur svo gegn nýliðum Coventry í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar 21. ágúst.