Fotbolti.net
29.07.26 - 15:18
Elvar Geir Magnússon

Liverpool undirbýr fyrsta tilboð í Barcola

Barcola í leik með franska landsliðinu.

Barcola í leik með franska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Liverpool er að undirbúa fyrsta tilboð í kantmanninn Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain.

Evrópumeistararnir eru með 145 milljóna punda verðmiða á franska landsliðsmanninum en Liverpool er ekki tilbúið að ganga að honum og vonast til að hægt sé að semja um lægri fjárhæð.
Liverpool í forgangi hjá Barcola
TENGT EFNI

Liverpool í forgangi hjá Barcola

Barcola er sagður vera tilbúinn að ganga í raðir Liverpool eftir að enska félagið ræddi við umboðsmenn hans í síðustu viku. Þessi 23 ára leikmaður á enn tvö ár eftir af samningi sínum við PSG og hefur ekki áhuga á að skrifa undir nýjan.

PSG telur að í ljós aldurs leikmannsins, möguleika á bætingu og núverandi markaðs sé 145 milljónir punda sanngjarn verðmiði.

Barcola hefur ekki átt fast byrjunarliðssæti hjá Luis Enrique en talið er að hann hafi hæfileika sem passi vel inn í leikstíl Andoni Iraola, nýs stjóra Liverpool. Síðustu tvö tímabil hefur Barcola skorað 34 möek og átt 28 stoðsendingar.

Hann lék alla átta leiki Frakka á HM og skoraði þrjú mörk. Arsenal, Bayern München og Chelsea hafa einnig sýnt honum áhuga.
Liverpool undirbýr fyrsta tilboð í Barcola
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.