29.07.26 - 14:20
Kári Snorrason
Veðbankar og lesendur hallast að Víkingi

Veðbankinn Epicbet telur líklegra að Víkingur fari áfram í næstu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nikolaj Hansen skoraði bæði mörk Víkings í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Flautað verður til leiks klukkan 17:30 á íslenskum tíma.

Víkingur mætir ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva síðdegis í seinni leik liðanna í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.
Víkingar leiða einvígið með einu marki eftir fyrri leikinn og myndi jafntefli því tryggja Víkingi sigur í einvíginu. Skyldi liðið vinna einvígið yrði það fyrsta íslenska liðið til þess að fara í 3. umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Sigur tryggir liðinu sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar, umspil um sæti í Evrópudeildinni og þá yrði liðið aðeins tveimur einvígum frá því að fara í deildarkeppni Meistaradeildarinnar.

TENGT EFNI
Líklegt byrjunarlið Víkings í Meistaradeildinni
Veðbankinn Epicbet telur Víking líklegra liðið til þess að sigra einvígið. Stuðullinn á að Víkingur fari áfram er 1.82 en 1.95 á þá ísraelsku.
Hapoel er þó talið mun líklegra til þess að vinna leikinn með 1.64 í stuðul, Víkingar með 4.78 og þá er 4.15 í stuðul á jfantefli.
Bet365 er á sama máli og setur 1.80 í stuðul á Víking til að fara áfram en 1.95 á Hapoel.
Þá ríkir mikil bjartsýni meðal lesenda Fótbolta.net, en um 70 prósent þeirra tæplega tvö þúsund sem tóku þátt í könnun á forsíðunni spá Víkingi áfram.
Leikið verður á Haladás leikvanginum í Szombathely í Ungverjalandi vegna átakana í Ísrael. Flautað verður til leiks 17:30 og gert er ráð fyrir um 200-300 ísraelskum stuðningsmönnum á vellinum.