Hin hliðin - Markús Ellertsson (ÍA)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bestur í klefanum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirmyndin, eldri bróðirinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skaginn að hringja.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besti leikmaður sem Markús hefur mætt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann er alltaf hlæjandi sem er alveg óþolandi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikil geit.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Seigur í Dirty Talk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Glæsilegur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klár í golf?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann er uppalinn hjá Fram og skoraði eitt mark í átta leikjum 2024. Hann fór svo árið 2025 til Ítalíu. Markús er sóknarmaður sem á að baki fjóra leiki fyrir U19 landsliðið.
Í dag sýnir Markús á sér hina hliðina.
Gælunafn: Kallaður oft MP
Aldur: 20 years young
Hjúskaparstaða: Lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Fyrsti leikur var á móti KR í 7-1 tapi, en ég setti hann
Uppáhalds drykkur: Er mikill Capri Sun kall
Uppáhalds matsölustaður: Eins og staðan er núna er súpa dagsins í kallabakari að toppa sig
Uppáhalds tölvuleikur: Brawlhalla í Arena með strákunum
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Eitthvað í bitcoin
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Toppar ekkert Suits
Uppáhalds tónlistarmaður: Bróðir minn Maron Birnir
Uppáhalds hlaðvarp: Er ekki mikill podcast kall
Uppáhalds samfélagsmiðill: Tiktokið er gott
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: yr er mikilvægt að kíkja á golfveðrið
Fyndnasti Íslendingurinn: Litli bróðir Óskar Bogga er helvíti fyndinn
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Rúnar Már “Hringi eftir 1”
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Val
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Ætla gefa Fred það
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Daniel Traustason hélt mér inn í þessu eftir að hafa pælt í að hætta.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Óskar Bogga, hann er alltaf hlæjandi sem er alveg óþolandi
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Frekar auðvelt svar, það er hann bróðir minn
Sætasti sigurinn: Þegar ég skoraði sjö á móti ÍR í 2. flokki
Mestu vonbrigðin: Böddi Löpp er alltaf að hætta við að koma með mér í golf, alvöru test á vinasambandið okkar
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Væri til í að fá Stíg Diljan til mín
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Emil Kalli 2010 er með gæði
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Már Ægisson er mjög fallegur
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Kolfinna í ÍA er sæt
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Neymar prime var frábært
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Rangstæða ætti að virka þannig að ef þú ert bara hálfur fyrir innan þá ertu ekki rangur
Uppáhalds staður á Íslandi: Jaðarbakkarnir, maður er alltaf þar
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Get ekki hugsað um neitt nýlega
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Alltaf vinstri skór og legghlíf, pizza í kvöldmat daginn fyrir
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Er mikill golfmaður
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nýir á leiðinni, Nike Mercurial Vapor 13, smá standpínu skór
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Var mjög lélegur í öllu
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég rann í landsleik og strákarnir hættu ekki að gera grín að því
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Neymar, Böddi löpp og Balotelli, væri gaman að sjá löppina opna sig fyrir Jr og Balo
Bestur/best í klefanum og af hverju: Gummi Tóta, söngvarinn getur ekki lokað munninum og elskar að skjóta á mig
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi henda Jóni Sölva ( B I G) í Love Island, dirty talkið hjá manninum er insane, hann er alltaf að kenna mér
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: ætlaði að velja handbolta yfir fótbolta
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Gísli Lax er svo mikil geit án þess að reyna það
Hverju laugstu síðast: Að ég tók 9 holur daginn fyrir leik en tók 18
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Alltaf sprettir, mjög þreytt
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Tiger Woodsarann um ráð
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir restina af tímabilinu: Vonandi mæta sem flestir að styðja okkur!

Bestur í klefanum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirmyndin, eldri bróðirinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skaginn að hringja.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besti leikmaður sem Markús hefur mætt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann er alltaf hlæjandi sem er alveg óþolandi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikil geit.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Seigur í Dirty Talk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Glæsilegur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klár í golf?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
