Fotbolti.net
29.07.26 - 18:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tveir Víkingar fóru meiddir af velli í fyrri hálfleik

Óskar Borgþórsson

Óskar Borgþórsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Staðan er markalaus í hálfleik í leik Víkings gegn Hapoel Be'er Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar. Víkingur er marki yfir í einvíginu eftir 2-1 sigur á Víkingsvelli.

Víkingar lentu í miklum skakkaföllum í fyrri hálfleik en Tarik Ibrahimagic og Óskar Borgþórsson þurftu að fara af velli vegna meiðsla.
Tarik var borinn af velli eftir að stigið var á hann og Sveinn Margeir Hauksson kom inn á í hans stað eftir níu mínútna leik. Stuttu síðar þurfti Óskar að fara af velli og Stígur Diljan Þórðarson kom inná. Þeir lentu báðir í fyrirliðanum Miguel Vitor.

Víkingar fengu úrvalsfæri til að komast yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Gylfi Þór Sigurðsson vann boltann og átti flottan sprett en átti slæma sendingu við vítateiginn. Sveinn Margeir vann boltann og boltinn fór af varnarmanni og rétt framhjá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.