29.07.26 - 14:30
Elvar Geir Magnússon
Hvernig tengist Trump áætlunum Infantino?

Trump og Infantino eftir úrslitaleik HM.

Mynd: EPA

Eitt stærsta fréttamál dagsins eru þær afskaplega umdeildu ætlanir Gianni Infantino, forseta FIFA, um að bjóða utanaðkomandi fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM.
Mikið hefur verið fjallað um náið samband Infantino og Donald Trump Bandaríkjaforseta. Það samband tengist sterklega inn í þessar áætlanir Infantino.
Fjárfestingarsjóðurinn sem FIFA á í viðræðum við, Thrive Capital, er undir stjórn Josh Kushner en bróðir hans, Jared Kushner, og Ivanka dóttir Donald Trump eru gift.

TENGT EFNI
Infantino tilkynnir KSÍ að sambandið fái yfir fimm milljarða styðji það áform sín
Síðustu ár hefur Infantino markvisst styrkt tengsl FIFA við Trump, valdamesta mann heims.
Infantino var meðal nánustu vina og ættingja Trump við innsetningu hans. Það vakti mikla gagnrýni þegar Infantino setti á laggirnar friðarverðlaun FIFA til þess eins að láta Trump fá þau.
Infantino opnaði síðan skrifstofuaðstöðu FIFA í sjálfum Trump turninum og heimilaði að heimsmeistarabikar félagsliða yrði geymdur í Hvíta húsinu. Samband Infantino og Trump var síðan áberandi í kringum HM í sumar.