Fotbolti.net
29.07.26 - 13:29
Elvar Geir Magnússon

Vill halda Bergvall en gefur engin loforð

Lucas Bergvall er 20 ára. Hér er hann í leiknum gegn Sydney.

Lucas Bergvall er 20 ára. Hér er hann í leiknum gegn Sydney.

Canon

Mynd: EPA

Sænski miðjumaðurinn Lucas Bergvall var óvænt í byrjunarliði Tottenham sem lék æfingaleik í Ástralíu í dag. Greint var frá því í sumar að Bergvall vilji fara frá Tottenham en Nottingham Forest og Newcastle hafa sýnt honum áhuga.

Roberto De Zerbi stjóri Tottenham segist vilja halda þessum tvítuga leikmanni en geti ekki lofað honum byrjunarliðssæti.
Robertson skoraði fyrir Tottenham af vítapunktinum
TENGT EFNI

Robertson skoraði fyrir Tottenham af vítapunktinum

„Ég er mjög hreinskilinn við hann og ykkur. Ég vil halda honum hjá okkur, mér finnst hann toppleikmaður en ég vil ekki neyða neinn í að vera áfram," segir De Zerbi.

„Hann getur unnið sér inn sæti ef hann verður áfram. Það er mikil samkeppni hjá Tottenham og við þurfum að byggja upp stóran hóp, ekki bara öflugt byrjunarlið. Ég get ekki lofað neinum leikmanni í heimi byrjunarliðssæti."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.