Fotbolti.net
29.09.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Kane á skilið að fá Gullboltann

Verður Kane fyrsti Englendingurinn til að vinna Gullboltann síðan 2001?

Verður Kane fyrsti Englendingurinn til að vinna Gullboltann síðan 2001?

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane, markahrókur Bayern München og fyrirliði enska landsliðsins, á mest skilið að fá Ballon'dor Gullboltann þetta árið. Þetta er afgerandi niðurstaða í könnun meðal lesenda Fótbolta.net.

Um 48% lesenda segja að Kane eigi mest skilið að fá nafnbótina besti leikmaður heims en jöfn barátta var um annað sætið milli Lionel Messi, Lamine Yamal, Rodri og Kylian Mbappe.
Veðbankar eru á sama máli og lesendur og er Kane sigurstranglegastur. Hann hefur sett met með því að vera sneggstur til að ná 100 mörkum í sögu þýsku Bundesligunnar.

Á tímabilinu 2025-26 skoraði Kane 36 mörk í 31 deildarleik og 14 í 13 leikjum í Meistaradeildinni. Þá skoraði hann 12 mörk fyrir enska landsliðið, þar af 6 á HM.

Mynd: Fótbolti.net

Komin er einn ný skoðanakönnun á forsíðu þar sem spurt er hvaða refsingu Manchester City eigi skilið að fá eftir fjárhagsbrot sín
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.