Fotbolti.net
29.09.26 - 10:14
Elvar Geir Magnússon

Rooney: Eigum ekki skilið að fá titilinn frá 2012

„Við sem lið verðskuldum ekki titilinn því við enduðum ekki efstir

„Við sem lið verðskuldum ekki titilinn því við enduðum ekki efstir

Canon

Mynd: EPA

Wayne Rooney segir að hann myndi ekki þiggja gullmedalíu ef titillinn yrði tekinn af Manchester City og Manchester United krýnt Englandsmeistari fyrir tímabilið 2011-12.

Rio Ferdinand og David de Gea, fyrrum liðsfélagar hans, hafa báðir sagt það opinberlega að þeir vilji fá titilinn frá 2012 eftir að Manchester City var fundið sekt af nánast öllum ákærum vegna fjárhagsbrota.

Rooney segir hinsvegar að United hafi ekki átt skilið að verða meistari.
Refsingarnar sem Man City gæti fengið
TENGT EFNI

Refsingarnar sem Man City gæti fengið

„Ég hef heyrt Rio tala um að fá annan verðlaunapening í ensku úrvalsdeildinni. Ég myndi ekki þiggja hann, ef ég á að vera alveg heiðarlegur,“ sagði hann í Stick To United hlaðvarpinu.

„Ég tel að við eigum ekki skilið að fá hann, við gerðum ekki nóg það tímabil til að vinna deildina. Við vorum sex eða sjö stigum á undan þegar fjórir eða fimm leikir voru eftir og við köstuðum því frá okkur. Við sem lið verðskuldum ekki titilinn því við enduðum ekki efstir."

Sergio Aguero tryggði City titilinn með frægu sigurmarki í uppbótartíma gegn QPR í lokaumferðinni 2012.
Sergio Aguero tryggði Manchester City titilinn í ótrúlegri dramatík.

Sergio Aguero tryggði Manchester City titilinn í ótrúlegri dramatík.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.