Fyrstu rannsóknir benda til þess að Fabinho, leikmaður Liverpool, sé ekki alvarlega meiddur.
Fabinho meiddist aftan í læri í sigrinum gegn FC Midtjylland í Meistaradeildinni í fyrrakvöld.
Fabinho meiddist aftan í læri í sigrinum gegn FC Midtjylland í Meistaradeildinni í fyrrakvöld.
Fabinho fór í rannsóknir í gær og þar kom í ljós að ekki er um að ræða alvarlega tognun.
Brasilíumaðurinn ætti að vera klár í slaginn strax eftir landsleikjahléið sem er framundan í nóvember.
Útlit er hins vegar fyrir að Fabinho missi af leikjunum gegn West Ham, Manchester City og Atalanta fyrir landsleikjahléið.
Athugasemdir