29.11.16 - 22:18
Hafliði Breiðfjörð
Bose mótið: Markalaust hjá KR og Stjörnunni

Guðmundur Andri Tryggvason með boltann í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Stjarnan 0 - 0 KR</b>
Ekkert mark var skorað þegar Stjarnan og KR mættust í Bose mótinu í Kórnum í Kópavogi í kvöld.

Bæði lið áttu fínustu færi og þeir Arnar Már Björgvinsson og Hólmbert Aron Friðjónsson áttu skot í stöng á marki KR. Hinum megin á vellinum varði Sveinn Sigurður Jóhannesson í stöng.
En þrátt fyrir allt vildi boltinn ekki fara inn og niðurstaðan því markalaust jafntefli.
Þetta var annar leikurinn af þremur í riðlinum. Fyrst gerðu Stjarnan og FH líka markalaust jafntefli. Lokaleikur riðilsins er svo viðureign KR og FH í Egilshöll klukkan 17:00 á laugardaginn.
Smelltu hér til að sjá nánar um Bose mótið