29.11.25 - 15:58
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Mikael Egill lagði upp mikilvægt sigurmark Genoa - Óttar Magnús á skotskónum

Mikael Egill átti geggjaða fyrirgjöf í sigurmarkinu

Mynd: EPA

Óttar Magnús gerði eina mark Renate í tapi

Mynd: Oakland Roots

Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson lagði upp sigurmark Genoa í 2-1 sigri á Hellas Verona í Seríu A á Ítalíu í dag, en markið kom Genoa upp úr fallsæti deildarinnar.
Genoa hefur gengið illa í byrjun leiktíðar og hafði aðeins unnið einn leik fram að leiknum í dag.
Gengi Verona hefur svo sem ekki verið neitt frábær heldur, en liðið var á botninum fyrir leikinn en tókst að komast yfir á 21. mínútu er Rafik Belghali hirti frákast í teignum.
Lorenzo Colombo jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks og hálftíma fyrir leikslok kom Mikael Egill með þessa ljúffengu fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Morten Thorsby var réttur maður á réttum stað og stangaði boltann í netið.
Laglegt sigurmark sem kom Genoa upp úr fallsæti og í 15. sæti með 11 stig en Verona áfram á botninum með 6 stig.
Udinese vann þá 2-0 útisigur á Parma. Nicolo Zaniolo skoraði fyrra markið á 11. mínútu en þegar um það bil hálftími var eftir sá Mariano Troilo rautt í liði Parma fyrir brot í teignum. Vont versnaði síðan fyrir heimamenn er Keinan Davis skoraði úr spyrnunni.
Udinese kom sér upp í 9. sæti með sigrinum en Parma komið niður í 16. sæti.
Bjarki Steinn Bjarkason var í byrjunarliði Venezia sem vann öruggan 3-0 sigur á Mantova í B-deildinni. Venezia er í 5. sæti með 25 stig eftir fjórtán leiki.
Óttar Magnús Karlsson skoraði þá eina mark Renate í 2-1 tapi gegn Arzignano í A-riðli C-deildarinnar. Hann skoraði markið aðeins nokkrum mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður í hálfleik.
Renate er í 9. sæti með 20 stig eftir sextán leiki.
Genoa 2 - 1 Verona
0-1 Rafik Belghali ('21 )
1-1 Lorenzo Colombo ('40 )
2-1 Morten Thorsby ('62 )
Parma 0 - 2 Udinese
0-1 Nicolo Zaniolo ('11 )
0-2 Keinan Davis ('65 , víti)
Rautt spjald: Mariano Troilo, Parma ('64)