Fotbolti.net
29.11.25 - 18:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Miklar óeirðir í Svíþjóð er Norrköping féll

Arnór Ingvi Traustason, leikmaður Norrköping

Arnór Ingvi Traustason, leikmaður Norrköping

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Það brutust út miklar óeirðir þegar Norrköping var við það að falla úr sænsku deildinni en leikur liðsins gegn Örgryte í umspili um sæti í efstu deild var að ljúka en hann hófst klukkan 14.
Norrköping hafnaði í þriðja neðsta sæti í efstu deild en Örgryte hafnaði í 3. sæti í næst efstu deild. Liðin mættust í seinni leiknum um sæti í efstu deild í dag en fyrri leiknum lauk með öruggum 3-0 sigri Örgryte.

Liðin mættust á heimavelli Norrköping í dag en staðan var enn markalaus þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma og stuðningsmenn Norrköping köstuðu blysum á völlinn með þeim afleiðingum að það kviknaði í.

Leikurinn fór aftur af stað en strax í kjölfarið köstuðu stuðningsmenn aftur flugeldum á völlinn og leikurinn stöðvaður í dágóðan tíma.

Stuðningsmönnum Norrköping var að lokum hent út og þá var hægt að klára síðustu mínúturnar. Leiknum lauk með markalausu jafntefli og Örgryte tryggði sér sæti í efstu deild en Nörrköping er fallið.

Ísak Andri Sigurgeirsson spilaði allan leikinn fyrir Nörrköping en Jónatan Guðni Arnarsson kom inn á fyrir Arnór Ingva Traustason undir lokin.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.