Fotbolti.net
29.11.25 - 23:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Sörloth með tvennu í sigri Atletico - Nico Williams á skotskónum

Spánn: Sörloth með tvennu í sigri Atletico - Nico Williams á skotskónum
Canon

Mynd: EPA

Alexander Sörloth var hetja Atletico Madrid þegar liðið vann Real Oviedo í spænsku deildinni í dag.

Hann skoraði bæði mörk liðsins en þetta var sjötti sigur liðsins í röð í deildinni. Atletico er í 3. sæti með 31 stig eftir 14 umferðir. Liðið er stigi á eftir Real Madrid sem á leik til góða og þremur stigum á eftir toppliði Barcelona. Oviedo er á botninum með níu stig.
Robert Navarro kom Athletic BIlbao yfir gegn Levante þegar hann skoraði af stuttu færi snemma leiks. Nico Williams innsiglaði sigurinn þegar hann batt endahnútinn á skyndisókn.

Athletic er í 8. sæti með 20 stig en Levante er í 19. sæti með níu stig.

Levante 0 - 2 Athletic
0-1 Robert Navarro ('3 )
0-2 Nico Williams ('44 )

Atletico Madrid 2 - 0 Oviedo
1-0 Alexander Sorloth ('16 )
2-0 Alexander Sorloth ('26 )

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona13+3636
2Real Madrid13+2233
3Atletico Madrid13+1631
4Betis13+527
5Real Sociedad13022
6Sevilla13-219
7Racing Santander13-1217
8Athletic12+316
9Alaves13016
10Villarreal13+115
11Espanyol13015
12Deportivo13-115
13Osasuna13-1015
14Celta13-113
15Levante13-512
16Vallecano12-712
17Valencia13-1112
18Getafe13-1312
19Elche13-611
20Malaga13-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.