„Það var alls ekki eitthvað langur aðdragandi," segir landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir sem gekk á dögunum í raðir skoska stórliðsins Rangers. Um er að ræða annað af tveimur stærstu félögunum í Skotlandi, félag sem er með gríðarlega mikla sögu.
Telma er 25 ára gömul og hefur unnið allt sem hægt er að vinna á Íslandi. Hún hafði verið hjá Breiðabliki frá 2016 og endaði sem Íslandsmeistari. Núna fannst henni vera kominn tími á næsta skref.
Telma er 25 ára gömul og hefur unnið allt sem hægt er að vinna á Íslandi. Hún hafði verið hjá Breiðabliki frá 2016 og endaði sem Íslandsmeistari. Núna fannst henni vera kominn tími á næsta skref.
„Ég var samningslaus og það var auðveldara fyrir mig að fara út núna á þessum tímapunkti. Ég var sjálf tilbúin að fara út og prófa eitthvað nýtt. Mér fannst þetta klárlega rétta tækifærið fyrir mig á þessum tímapunkti í mínu lífi," segir Telma.
„Það var ótrúlega gaman að eiga gott tímabil á Íslandi og það var gott að vera heima í Bestu deildinni, en innst inni hefur maður stefnt að því að komast út í atvinnumennsku í mörg ár. Ég ætla ekki að segja að ég sé komin á aldur, ég er bara 25 ára, en ég hef spilað lengi á Íslandi og vinna allt sem hægt er að vinna. Af hverju ekki að skella sér í djúpu laugina og flytja til útlanda?"
Frábært fyrsta skref
Telma skrifar undir tveggja og hálfs árs samning við Rangers en það voru önnur félög sem sýndu henni líka áhuga. Hún átti líklega sitt besta tímabil á ferlinum í fyrra er Blikar urðu Íslandsmeistarar.
„Það voru fjögur önnur félög sem heyrðu í mér en mér leist langbest á Rangers," segir Telma en hún telur Rangers vera frábært fyrsta skref í atvinnumennsku.
„Ég fór og kíkti á aðstæður í desember. Mér finnst þetta geggjuð staðsetning og félagið er frábært. Það er líka tungumál og annað sem spilar inn í. Auðvitað myndi maður alltaf fara út í atvinnumennsku þó maður talaði ekki tungumálið en það er frábært fyrir mig að taka fyrsta skrefið á þessum stað. Eiginlega bara fullkomið."
Mikil saga
Rangers er annað af tveimur stærstu félögum Skotlands en liðið er sem stendur í öðru sæti skosku deildarinnar. Það er vel haldið utan um kvennaliðið hjá félaginu.
„Ég er mjög stolt að vera orðin leikmaður Rangers. Það var gaman að koma hér út og skoða aðstæður, sjá hvernig þetta er hjá þeim. Karlaliðið æfir á sama stað og það eru vellir út um allt. Æfingasvæðið er geggjað og aðstæður eru mjög flottar. Félagið er risastórt og það er vel haldið utan um kvennaliðið. Mér finnst það mjög jákvætt."
„Karlarnir spiluðu við Manchester United í síðustu viku. Það er margt í gangi í þessu félagi og maður finnur að það er rosa sterkt hugarfar hér. Þau ætla alltaf að standa sig og gera vel, vinna deildina og bikarinn. Þetta er kannski svipað hugarfar og í Breiðabliki, en smá öðruvísi auðvitað. Ég hef verið í svona umhverfi þar sem það kemur ekkert annað til greina en að vinna."
„Það er mikil saga hérna. Fyrsti leikurinn sem ég sá eftir að ég kom út - á meðan ég var enn að bíða eftir allri pappírsvinnu - var Rangers á móti Celtic. Það er alvöru leikur á milli risa félaga. Sagan þar á bak við nær langt aftur í tímann. Fólkið hérna heldur annað hvort með Celtic eða Rangers," segir Telma sem er að fara í samkeppni um sæti í liðinu.
„Það er samkeppni hérna. Það eru tveir aðrir markverðir í liðinu og þær eru mjög góðar. Auðvitað ætla ég að gera allt sem ég get gert til að taka byrjunarliðssætið. Ég ætla að standa mig eins vel og ég get."
Kynnist nýju lífi
Það er öðruvísi líf að vera atvinnukona í Skotlandi og að spila hér heima á Íslandi.
„Ég er ótrúlega ánægð og mér líður ótrúlega vel. Þetta er svolítið öðruvísi en að fara á æfingu klukkan 16:30 eða 17:30 á Íslandi og vera búin um 20:00. Það hafa allir tekið vel á móti mér og stelpurnar í liðinu hafa verið mjög indælar. Ég er rosalega ánægð," segir Telma sem er að koma sér vel fyrir í Skotlandi.
„Ég fékk íbúð hjá aðstoðarþjálfaranum sem var að fara annað. Ég er svo að fá aðra íbúð sem ég valdi. Er að bíða eftir pappírum en hún tekur alltaf smá tíma þessi pappírsvinna hér á Bretlandi."
„Þetta er svolítið öðruvísi líf. Heima fór maður í skólana á morgnana, svo að vinna og þaðan á æfingar. Breytingin frá hinu venjulega íslenska lífi er mikil. Núna er dagurinn minn þannig að ég er mætt upp á æfingasvæði tæplega 09:00 og er búin um 15:00. Það er vinnudagurinn minn núna. Ég þarf að vera þolinmóð að aðlagast þessu nýja lífi."
Þarftu að finna þér einhver ný áhugamál?
„Ég þarf ekki að finna mér mörg ný áhugamál. Ég er í fjarnámi eins og er. Ég er í tveimur áföngum í íþróttafræði sem ég á að vera að sinna en ég hef ekki verið alveg nægilega dugleg ef ég á að vera hreinskilin. Maður verður að hafa eitthvað. Skólinn tók ógeðslega vel í það að ég væri að fara út og vildi hjálpa mér. Ég reyni að gera mitt besta."
Veit hvað ég er að skrá mig í
Síðasta tímabil var frábært fyrir Telmu en núna er hausinn kominn á nýjan stað og á ný verkefni.
„Ég er ekki að pæla neitt rosalega mikið í síðasta tímabili þó það hafi verið gríðarlega gaman. Núna er ég farin að fókusa á annað og spennandi. Ég vil þó manna mest að Breiðablik verði Íslandsmeistari á þessu ári líka. Ég mun áfram fylgjast með Breiðabliki. Ég kem heim í sumarfrí og þá verður nóg að gera."
„Ég er búin að vera helvíti lengi í Breiðabliki. Ég hef reyndar líka farið á lán hér og þar. Það var erfitt að fara. Hópurinn hefur aldrei verið betri en í fyrra og það sama á við um andrúmsloftið. Við unnum Íslandsmeistaratitilinn sem var gríðarlega sætt. Maður er líka skóla, á fjölskyldu og vini. Það er allt líf manns á Íslandi og það er erfitt að skilja það eftir, en ég veit hvað ég er að skrá mig í," sagði þessi öflugi markvörður að lokum en hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt myndband sem Rangers gaf út þegar Telma var tilkynnt hjá félaginu.
???? Behind-The-Scenes | Signing Day
— Rangers Women (@RangersWFC) January 21, 2025
???????? Take a look at signing day as goalkeeper Telma Ívarsdóttir joined the club from Breidablik. pic.twitter.com/U7G4FGdjN9
Athugasemdir