Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   þri 30. mars 2021 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo: Ég vil biðja allar mæður afsökunar
Ronaldo fékk sér þessa hárgreiðslu og hún trendaði um allan heiminn
Ronaldo fékk sér þessa hárgreiðslu og hún trendaði um allan heiminn
Mynd: Getty Images
Fyrrum brasilíski landsliðsmaðurinn Ronaldo hefur beðið allar mæður afsökunar fyrir að hafa skartað eina furðulegustu hárgreiðslu allra tíma á HM í Suður-Kóreu og Japan árið 2002. Hann ræddi um greiðsluna við Sports Illustrated á dögunum.

Ekki er hægt að deila um gæði Ronaldo á vellinum en hann spilaði með liðum á borð við PSV, Barcelona, Inter, Real Madrid og AC Milan á ferlinum og var þá magnaður með landsliðinu sem vann HM árið 2002.

Hann fór heldur óvenjulega leið þegar það kom að því að snyrta hárið fyrir heimsmeistaramótið en hann snoðaði sig og skildi eftir topp að framan.

Ronaldo var á þessum tíma einn þekktasti knattspyrnumaður heims og átti sér marga stuðningsmenn en þetta var ein heitasta klippingin á rakarastofum um allan heim og hefur hann nú beðist afsökunar á gjörðum sínum.

„Þetta var skelfilegt. Ég vil biðja allar þær mæður sem horfðu upp á börnin sín fá sér þessa hárgreiðslu innilegrar afsökunar á þessu," sagði Ronaldo

Ronaldo var ekki með klippinguna í riðlakeppninni né í 16-liða og 8-liða úrslitum en þegar hann meiddist fyrir undanúrslitaleikinn gegn Tyrkjum ákvað hann að mæta í viðtöl með þessa klippingu til að draga athyglina frá meiðslunum, sem jú svínvirkaði.

Hann var markahæsti maður mótsins með 8 mörk en hann gerði tvö mörk í úrslitaleiknum gegn Þjóðverjum sem tryggði þeim sigur.
Athugasemdir
banner
banner
banner