11.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Nketiah íhugar að skipta um landslið

Eddie Nketiah gæti spilað fyrir Gana

Mynd: EPA

Eddie Nketiah gæti spilað fyrir Gana

Mynd: EPA
Enski framherjinn Eddie Nketiah er alvarlega að íhuga það að skipta um landslið, en Gana hefur óskað eftir því að fá hann. Þetta kemur fram í Evening Standard.
Nketiah er 27 ára og á sínu þriðja tímabili með Crystal Palace. Hann hefur bæði orðið bikarmeistari og unnið Sambandsdeildina með liðinu.
Hann lék með yngri landsliðum Englands og á einn A-landsleik að baki, í 1-0 sigri á Ástralíu í vináttulandsleik árið 2023. Þar sem hann hefur ekki leikið keppnisleik með Englandi getur hann enn skipt um landslið. Nketiah er fæddur og uppalinn á Englandi en foreldrar hans eru frá Gana og getur hann því leikið fyrir þjóðina.
Gana vill styrkja hópinn enn frekar fyrir komandi mót og hefur áður fengið til sín leikmenn sem fæddust og ólust upp í öðrum löndum. Þar á meðal er Antoine Semenyo, sem valdi Gana fram yfir England.
Inaki Williams, Brandon Thomas-Asante, Jordan Ayew, Elisha Owusu, Marvin Senaya, Derrick Luckassen og Jerome Opoku eru einnig í þeim hópi, en þeir voru allir í HM-hópi Gana í sumar.