Magnús er uppalinn í Fram og hefur leikið þar allan sinn fyrir utan tók hálft ár í 2. flokki með Fjölni árið 2018 og sumarið 2021 með Njarðvík.
Hann er kantmaður sem skoraði fjögur mörk í Bestu deildinni á síðasta ári. Alls eru KSÍ leikirnir 117 og mörkin 26. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 9. sæti: Fram
Hann er kantmaður sem skoraði fjögur mörk í Bestu deildinni á síðasta ári. Alls eru KSÍ leikirnir 117 og mörkin 26. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 9. sæti: Fram
Fullt nafn: Magnús Ingi Þórðarson
Gælunafn: Maggi eða Mingi
Aldur: 23
Hjúskaparstaða: lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2018 á móti Víkíng Ó
Uppáhalds drykkur: Skógarberja Collab
Uppáhalds matsölustaður: Hraðlestin er mjög góð
Hvernig bíl áttu: Keyri um á Prius
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Office og Breaking bad
Uppáhalds tónlistarmaður: Aron Can er í uppáhaldi
Uppáhalds hlaðvarp: Dr. Football
Fyndnasti Íslendingurinn: Hjörvar Hafliða er fyndinn
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: "Jú er ennþá með þessa risa bólu á pungnum" frá Halldóri
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Sennilega Fylki eða Grindavík
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Jökull Steinn þegar hann var á deginum sínum á æfingum var erfiður
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Bjarni Jó var góður
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Það pirrar mig enginn þannig
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Allaveganna ekki Halldór brósi
Sætasti sigurinn: Hann var kannski ekkert sérstaklega sætur en það var gaman að vinna ÍA 4-0 í fyrra
Mestu vonbrigðin: Fara ekki upp með Njarðvík sumarið 2020 voru vonbrigði
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Halldór Jón Sigurð Þórðarson heim í FRAM væri gæsahúð
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Breki Baldursson
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Aron Snær Ingason
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Ída í Val
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Ekki sofa á Mása
Uppáhalds staður á Íslandi: Heima á Kjalarnesinu
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar ég skoraði á móti Leikni í fyrra með stórfurðulegri sendingu sem átti að fara á Albert sem var inní teig en boltinn lak eittthverneginn bara inn
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Ef Tryggvi Snær hellir collabnum mínum niður rétt fyrir leik þá skora ég yfirleitt
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Fylgist vel með körfunni og handboltanum á Íslandi
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Mercurial Vapor
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Var aldrei sterkur í eðlisfræðinni
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég fékk 1 í lokaeinkunn í eðlisfræði
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: Tæki tvíburana Tóta og Hlyn Atla með svo það verði stuð á eyjunni svo myndi ég taka Aron Snæ með mér til að skilja hann eftir á eyjunni
Sturluð staðreynd um sjálfan þig:
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Þórir Guðjónsson, hélt hann væri ógeðslega þurr og leiðinlegur
Hverju laugstu síðast:
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Að tapa
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Nani afhverju hann eyðilagði markið hans Ronaldo á móti Spáni
Athugasemdir