Fotbolti.net
30.03.24 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson

Tuchel óskar Leverkusen til hamingju - „Titilbaráttunni er lokið“

Tuchel óskar Leverkusen til hamingju - „Titilbaráttunni er lokið“
Canon

Mynd: Getty Images

Thomas Tuchel, þjálfari Bayern München, hefur nú gefið upp alla von á því að landa þýska deildartitlinum í ár.
Bayern tapaði fyrir erkifjendum sínum í Borussia Dortmund í dag, 2-0, og er nú þrettán stigum á eftir toppliði Bayer Leverkusen þegar sjö umferðir eru eftir.

Tuchel talaði hreint út þegar hann var spurður út í titilbaráttuna og hvaða þýðingu þetta tap hefur fyrir liðið.

„Ég vil óska Bayer Leverkusen innilega til hamingju. Titilbaráttunni er lokið,“ sagði Tuchel.

Bayern hefur unnið titilinn síðustu ellefu ár og samtals átján sinnum á þessari öld. Það stefnir í að Bayer Leverkusen taki sinn fyrsta titil í sögunni, en fimm sinnum hefur liðið hafnað í öðru sæti.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Köln8-39
14Paderborn8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.