Fotbolti.net
30.05.13 - 21:53
Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjóns: Grenivík? Ég vil bara fá heimaleik

Auglýsing
Heimir Guðjóns:  Grenivík?   Ég vil bara fá heimaleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Borgun
,,Ég er ánægður með að komast áfram í keppninni. Við duttum út í fyrra í 32 liða úrslitum og erum allavega komnir í 16 liða úrslit, það er jákvætt, framför,\" sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 3-2 sigur á Keflavík í 32 liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
,,Mér fannst við ekki góðir í fyrri hálfleik en samt sem áður komumst við yfir. Við vorum svo klaufalegir þegar við fengum á okkur mark úr hornspyrnu. Mér fannst við bæta okkur í seinni hálfleik og við náðum að kreista fram sigur.\"

Næstkomandi mánudag er dregið í 16 liða úrslitin. Atli Viðar sem skoraði tvö mörk í dag óskar sér að fara í Grenivík og mæta Magna, en hver er ósk Heimis?

,,Ég vil bara fá... Grenivík? Ég vil bara fá heimaleik það er það eina sem ég hugsa um,\" sagði Heimir.

Margir leikmanna FH liðsins eru á meiðslalista, þeir Guðjón Árni Antoníusson, Sam Tillen, Freyr Bjarnason, Albert Brynjar Ingason, Hólmar Örn Rúnarsson og Hákon Atli Hallfreðsson en síðastnefndu tevier eru í langtíma meiðslum. En hvernig er staðan á hinum fjórum?

,,Það var fínt að ná að kreista fram sigur. Næsti leikur er KR 10. júní og þá reikna ég með að allir verði klárir fyrir utan þá sem eru í langtíma meiðslum, Hólmar og Hákon.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.