Fotbolti.net
30.05.14 - 13:19
Magnús Már Einarsson

Ingó: Væri fínt ef bæði mörkin kæmu í Keflavík

Auglýsing
Ingó: Væri fínt ef bæði mörkin kæmu í Keflavík
Canon

Mynd: Hamar

Borgun
,,Ég held að þetta verði skemmtileg upplifun. Keflavík er mjög gott lið, það er hefð þar og mjög fínn völllur,\" sagði Ingólfur Þórarinsson þjálfari Hamars við Fótbolta.net eftir að ljóst varð að liðið mætir Keflavík á útivelli í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins.
Hamar sigraði KF úr 2. deild í 32-liða úrslitunum og 3. deildarliðið stefnir ennþá lengra.

,,Vonandi gefum við Keflavík hörkuleik. Ég hef trú á strákunum. Þetta er fínt lið sem við erum með og þetta verður skemmtilegur leikur held ég.\"

Ingólfur er sjálfur að spila með liði Hamars og stefnir á að skora í leiknum í Keflavík.

,,Ég skora svona tvö mörk á ári þannig að það væri fínt að gera þau bæði í Keflavík,\" sagði Ingó léttur.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.