Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 30. maí 2020 11:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Telur að Mbappe sé ekki leikmaður sem henti Klopp
Kylian Mbappe.
Kylian Mbappe.
Mynd: Getty Images
Jason McAteer, fyrrum leikmaður Liverpool, er á þeirri skoðun að Kylian Mbappe henti ekki Liverpool.

Mbappe, sem er lykilmaður í Paris Saint-Germain og franska landsliðinu, hefur meðal annars verið orðaður við Liverpool. Mbappe, sem er 21 árs, er hins vegar ekki efstur á óskalista McAteer.

„Ég er ekki viss um að hann sé leikmaður að skapi Jurgen (Klopp). Að mínu mati er hann það ekki," sagði McAteer við Stats Perform News.

„Ég væri frekar til í að sjá Werner eða Sancho koma. Mér finnst Mbappe ekki passa fótboltalega séð á þessum tímapunkti."

Enska úrvalsdeildin á að hefjast aftur þann 17. júní næstkomandi, en Liverpool er á toppnum með 25 stiga forskot og í rauninni aðeins tímaspursmál hvenær liðið tryggir sér titilinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner