Fotbolti.net
Eyddu nærri 60 milljörðum en eru í fallsæti - Hvað er í gangi hjá Tottenham?

16.10.26

Eyddu nærri 60 milljörðum en eru í fallsæti - Hvað er í gangi hjá Tottenham?

ÍVAR BJÖRGVINSSON

Það voru miklar væntingar gerðar til Tottenham fyrir þetta tímabil eftir að félagið eyddi um 366 milljónum punda í nýja leikmenn í sumar, sem samsvarar um 59 milljörðum íslenskra króna, og margir sparkspekingar voru farnir að tala um að félagið gæti blandað sér í baráttuna um Meistaradeildarsæti. Sú hefur hins vegar alls ekki orðið raunin en eftir sex umferðir í ensku úrvalsdeildinni situr Tottenham í 18. sæti með aðeins þrjú stig og er enn án sigurs. Liðið hefur aðeins skorað þrjú mörk í þessum sex leikjum og ljóst er að eitthvað mikið þarf að breytast ætli félagið sér að standa undir þeim væntingum sem gerðar voru fyrir tímabilið.

Tottenham hefur endað í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar tvö tímabil í röð en Roberto De Zerbi tók við liðinu undir lok síðasta tímabils og bjargaði félaginu frá falli. Í kjölfarið ákvað stjórn Tottenham að gefa ítalska stjóranum fullt traust og fjármagnið sem fór í leikmannakaup í sumar var ekkert smáræði. Sparkspekingar út um allan heim, sem og í vinsælum hlaðvörpum hérlendis, kepptust við að tala um hve spennandi lið Tottenham væri með og að Meistaradeildarsæti yrði líkleg niðurstaða. Stuðningsmenn liðsins voru margir hverjir farnir að hafa ofurtrú á liðinu fyrir komandi tímabil og tölfræðifyrirtækið Opta spáði því einnig að líklegasta lokasæti Tottenham yrði það sjöunda, en nú virðist liðið vera að stefna í enn eina fallbaráttuna.

Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur, knattspyrnusérfræðingur og stuðningsmaður Tottenham, ræddi við Fótbolta.net um stöðu félagsins og þær miklu væntingar sem hann hafði fyrir tímabilið.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.