Fotbolti.net
16.10.26 - 11:10
Elvar Geir Magnússon

Merino: Ég er heppinn að vera á lífi

Merino: Ég er heppinn að vera á lífi
Canon

Mynd: EPA

Mikel Merino, miðjumaður Arsenal, segir að það gæti hafa bjargað lífi sínu að skipta um sæti í liðsrútunni á síðustu stundu þegar hann var leikmaður Borussia Dortmund.

Spánverjinn var tvítugur þegar sprengjuárás var gerð á rútuna þegar liðið var á leið í leik gegn Mónakó í undanúrslitum Meistaradeildarinnar 2017. Þrjár sprengjur sprungu. Varnarmaðurinn Marc Bartra var sá eini sem meiddist, en meiðsli hans voru lítilvæg.
Merino rifjar þessa árás upp í viðtali við The Players' Tribune og segir að risastór sprengjubrot hafi fests í höfuðpúðanum á sætinu sem Merino sat venjulega í, en hann hafði kosið að sitja annars staðar þar sem hann var stífur í fótunum.

„Sætin að framan lágu niðri svo ég settist þar í staðinn, og það gæti hafa bjargað lífi mínu. Ég held að ég hafi engil á öxlinni. Ég er í raun heppinn að vera á lífi," segir Merino. „Þetta hafði áhrif á okkur alla. Það heyrðist óbærilegur hávaði og svo man ég eftir því að rútan var næstum því að velta."

Merino rifjar upp að hafa séð blóð á gólfinu, fundið reykjarlykt og heyrt öskur. Leiknum var frestað þar til daginn eftir og sú ákvörðun var gagnrýnd af Thomas Tuchel, sem þá stýrði Dortmund.

Sergei Wenergold, Þjóðverji af rússneskum uppruna, var settur í fangelsi 2018 eftir að hafa viðurkennt að hafa staðið fyrir árásinni.

Í umræddu viðtali ræðir Merino einnig um það þegar hann var í kapphlaupi við tímann til að ná að spila fyrir Spánverja á HM í sumar. Hann vann það kapphlaup og stóð uppi sem heimsmeistari með liðinu í sumar.
Merino: Ég er heppinn að vera á lífi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.