Fotbolti.net
16.10.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gross á lista með Lamine Yamal

Gross á lista með Lamine Yamal
Canon

Mynd: EPA

Hinn 35 ára gamli Pascal Gross hefur sjaldan verið jafn góður og á þessu tímabili en hann hefur komið að átta mörkum í sex leikjum í úrvalsdeildinni með beinum hætti.

Það er mikil sköpunargleði í Þjóðverjanum en hann hefur skapað fjörutíu færi fyrir samherja sína.
Það er aðeins einn leikmaður í einum af stærstu deildum Evrópu sem hefur skapað jafn mörg færi.

Það er hinn 19 ára Lamine Yamal, leikmaður Barcelona. Hann hefur komið að 17 mörkum í tíu leikjum hjá spænska liðinu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.