Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   sun 30. maí 2021 22:11
Stefán Marteinn Ólafsson
Brynjar Björn: Hefðum geta verið búnir að klára leikinn í fyrri hálfleik
Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK.
Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK tók á móti nýliðum Leiknir Reykjavík núna í kvöld þegar sjöunda umferð Pepsi Max-deildar karla hóf göngu sína.

HK hafði fyrir leikinn ekki unnið leik í deildinni en það breyttist í kvöld.

Lestu um leikinn: HK 2 -  1 Leiknir R.

„Sanngjörn úrslit. Við hefðum geta verið búnir að klára leikinn í fyrri hálfleik með því að skora úr víti. Förum inn með 2-0 í hálfleikinn og allt í góðu en engu að síður viðkvæm staða," sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, eftir sigurinn í kvöld.

HK fékk vítaspyrnu í stöðunni 2-0 þar sem Stefan Alexander Ljubicic steig á punktinn en klúðraði spyrnunni. Þetta er í annað sinn á tímabilinu þar sem Stefan Ljubicic klúðrar vítaspyrnu fyrir HK en hann átti mjög keimlíka spyrnu gegn FH fyrr á tímabilinu. Brynjar Björn segist þó ekki hugsa um að skipta um vítaskyttu fyrir næstu spyrnu.

„Nei, ég hef bara ekki hugsað um það. Sennilega ekki nei."

Leiknismenn minnkuðu muninn í síðari hálfleik með umdeildu marki en HK vildu fá dæmda aukaspyrnu í aðdraganda marksins.

„Mér finnst þetta bara ekkert umdeilt. Mér finnst þetta bara aukaspyrna og Leiknismaðurinn keyrir inn í Arnar og Arnar í sjálfu sér lendir bara á bakinu. Það er ekki eins og þeir hafi verið að hoppa saman eða eitthvað. Þannig án þess að ég sé búin að sjá það (endursýnt) þá fannst mér þetta augljóst sóknarbrot.

Nánar er rætt við Brynjar Björn Gunnarsson í spilaranum hér fyrir ofan
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner