
„Ég er mjög pirruð. Mér fannst við eiga meira skilið úr leiknum. Auðvitað áttu þær sína séns en við áttum okkar sénsa svo sannarlega líka," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eftir 1-1 jafntefli gegn Noregi í Þjóðadeildinni í kvöld.
„Það var hrikalega sorglegt að fá þetta mark á okkur, en við hljótum að vinna þær bara á EM."
„Það var hrikalega sorglegt að fá þetta mark á okkur, en við hljótum að vinna þær bara á EM."
Lestu um leikinn: Noregur 1 - 1 Ísland
Karólína fékk gott færi til að tvöfalda forystuna undir lok fyrri hálfleiks.
„Ég held að ég myndi skora úr þessu færi í svefni á öðrum degi. Ég veit ekki alveg hvað gerist. Ég eyði of miklum tíma á boltanum og geri færið svolítið þröngt fyrir sjálfa mig."
„Mér leið aðeins betur þegar ég sé besta leikmann heims klúðra eins færi í seinni hálfleik, Caroline Graham Hansen. Þetta gerist," sagði Karólína.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir