Portúgalski sóknarmaðurinn Rafael Leao hefur tilkynnt að hann vilji fara frá Milan í sumar. Leao gekk til liðs við Milan frá Lille árið 2019. Hann hefur spilað 291 leik fyrir liðið og skorað 80 mörk.
„Ég er stoltur þar sem ég skrifaði söguna með Milan en nú vil ég byrja nýjan kafla. Ég hlakka til að spila í annarri deild. Ég gerði mitt besta fyrir Milan, félagið sem gaf mér allt en mér finnst ég vera tilbúinn fyrir nýtt lið, nýja deild og nýja áskorun," sagði Leao í viðtali á Sport TV í Portúgal.

Hann kom við sögu í 31 leik, skoraði 10 mörk og lagði upp þrjú í öllum keppnum á nýliðnu tímabili.
Hann hefur verið orðaður við Man Utd undanfarið. Enska félagið gæti fengið hann á góðu verði þar sem Milan mistókst að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.