Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
banner
   lau 30. maí 2026 15:26
Brynjar Ingi Erluson
Slot sendi frá sér stutta yfirlýsingu
Mynd: EPA
Arne Slot hefur sent frá sér stutta yfirlýsingu eftir brottreksturinn frá Liverpool.

Slot var rekinn frá félaginu eftir frammistöðuviðtal hans með stjórninni.

Hann tók við Liverpool árið 2024 eftir að hafa gert frábæra hluti Með Feyenoord í Hollandi.

Hollendingurinn vann deildina á fyrsta tímabili sínum með Liverpool, en rétt náði að tryggja liðinu í Meistaradeildina á nýafstaðinni leiktíð þar sem leikstíll hans var iðulega gagnrýndur.

Liverpool ákvað að róa í aðra átt, en Slot segist þakklátur fyrir tímann.

„Þetta hefur verið stórkostlegt ferðalag með Liverpool. Ég er svo þakklátur að við náðum að vinna ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili,“ sagði Slot.

Spánverjinn Andoni Iraola, sem hætti með Bournemouth á dögunum, mun taka við af Slot.
Slapp
banner