Fotbolti.net
30.06.05 - 08:42
Hafliði Breiðfjörð

Phillips til Aston Villa (Staðfest) - Lofar 20 mörkum

Phillips til Aston Villa (Staðfest) - Lofar 20 mörkum
Canon
Kevin Phillips gekk í gær í raðir Aston Villa frá Southampton en kaupverðið er ein milljón punda. Phillips sagði við það tækifæri er hann var kynntur sem leikmaður liðsins að hann ætli að skora 20 mörk á næsta tímabili.
Hann er 31 árs gamall og varð fyrsti leikmaðurinn sem yfirgefur Southampton eftir fall þeirra úr ensku úrvalsdeildinni í vor. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Villa eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun.

,,Ég er hæstánægður með að vera komin aftur í úrvalsdeildina og að koma til svona frábærs félags er mjög góð skipti fyrir mig," sagði Phillips.

,,Ég veit að stjórinn hefur haft áhuga á að kaupa mig lengi og að þegar það varð ljóst að Villa höfðu enn áhuga á mér fyrir sumarið, þá var enginn vafi í mínum huga. Ég vildi ekki fara neitt annað."

,,Ég hef aldrei átt í vanda með að setja mér takmörk, hvar sem ég hef spilað. Ég set takmarkið alltaf við 20 mörk á leiktíð og það verður að vera takmarkið á næstu leiktíð, þó ég viti að ég hafi ekki tryggt sæti."

,,Við erum með góða framherja. Juan Pablo Angel, Darius Vassell og hinn unga Luke Moore. En ég er ákveðinn í að setja mark mitt á þetta og sýna að ég get enn skorað í úrvalsdeildinni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.