30.06.05 - 15:47
Magnús Már Einarsson
Birmingham keypti Nafti (Staðfest)

Nafti fagnar marki með Racing Santander.


Nafti fagnar marki með Racing Santander.

Birmingham hefur keypt miðjumanninn Mehdi Nafti frá spænska liðinu Racing Santander. Nafti sem er 26 ára Túnisbúi var í láni hjá Birmingham seinni hluta síðasta tímabils og nú hefur liðið keypt hann fyri óuppgefna upphæð.
Nafti hefur gert þriggja ára samning við Birmingham en hann mun koma til æfinga hjá liðinu þann 6.júlí. Hann fær lengra sumarfrí en aðrir leikmenn Birmingham þar sem hann var að spila í Álfukepninni.
