Fotbolti.net
30.06.05 - 16:22
Magnús Már Einarsson

Wome til Inter (Staðfest)

Wome til Inter (Staðfest)
Canon
Vinstri bakvörðurinn Pierre Wome hefur gert eins árs samning við Inter Milan. Wome sem er 26 ára Kamerúni kemur til liðsins frá Brescia. Hann kom til Brescia frá Espanyol í janúar síðastliðnum en auk þess hefur hann spilað með Bologna, Roma og Vicenza á Ítalíu. Þá lék hann einnig með Fulham á Englandi.
Wome sem er nú í sumarfríi ásamt tveimur börnum sínum og konunni sinni sagði í samtali við heimasíðu Inter að hann væri mjög stoltur að ganga til liðs við Inter og segir liðið hafa allt til að vinna marga titla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.