Fotbolti.net
30.06.05 - 17:27
Magnús Már Einarsson

Allback til FC Köbenhagen (Staðfest)

Marcus Allback fagnar marki með félögum sínum.

Marcus Allback fagnar marki með félögum sínum.

Canon
Sænski framherjinn Marcus Allback hefur gengið til liðs við FC Copenhagen. Allback sem verður 32 ára í næstu viku kemur frá þýska liðinu Hansa Rostock en þar hefur hann verið í eitt ár eða síðan hann fór frá Aston Villa síðastliðið sumar.
Allback sem hefur skorað 23 mörk í 50 landsleikjum fyrir Svía hefur einnig leikið með Heerenveen í Hollandi og Bari á Ítalíu.

Copenhagen hefur einnig fengið Peter Ijeh framherj Gautaborg frá Svíþjóð. Ijeh sem er 28 ára Nígeríumaður kemur til Copenhagen á um 600 þúsund pund samkvæmt Ekstra Bladet.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.