30.06.05 - 17:48
Navarro til Mallorca (Staðfest)

Navarro hér fyrir miðju

Navarro hér fyrir miðju

Fernando Navarro leikmaður Barcelona er genginn til liðs við Mallorca á eins árs lánssamningi, en eftir lánstímann hafa Mallorca forkaupsrétt á honum. Þessi ungi vinstri bakvörður varð ekki ánægður þegar að Frank Riikjard knattspyrnustjóri Barcelona tilkynnti honum að hann væri ekki í framtíðaráformum hans og ákvað þess vegna að fara.
Navarro fór til Barcelona árið 1993 og fór upp flesta yngri flokkanna áður en að hann komst í aðallið Barcelona árið 2001, en þá var við stjórnvölin Carles Rexach.
Síðan spilaði hann reglulega í vörninni undir stjórn Louis van Gal árið 2003, en slæm meiðsl settu svip á það ár og voru þeir Silvinho og Giovanni van Bronckhorst keyptir til þess að fylla skarð hans.
Navarro fór á láni í 6 mánuði til Albacete eftir að hann náði bata og sneri síðar aftur til Barca þar sem hann hefur nánast ekkert fengið að gera.