Fotbolti.net
30.06.16 - 09:48
Magnús Már Einarsson

Birkir Bjarna: Flestir eru vanir þessari athygli

Auglýsing
Birkir í leiknum gegn Englendingum.

Birkir í leiknum gegn Englendingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
<i>„Við erum búnir að taka því rólega og reyna að einbeita okkur að endurheimtinni. Það er nauðsynlegt eftir þennan leik,\"</i> sagði Birkir Bjarnason við fjölmiðla í dag.

Birkir átti mjög góðan leik í 2-1 sigrinum á Englendingum á mánudagskvöld.
„Ég held að það hafi verið besti leikur okkar í langan tíma. Við spiluðum gríðarlega vel í 93 mínútur. Við sýndum að við getum haldið bolta og spilað góðan bolta á móti góðum liðum.\"

Íslenska liðið hefur fengið gríðarlega mikla umfjöllun um allan heim eftir sigurinn á Englandi. „Flestir eru vanir þessari athygli. Þó að það sé miklu meira af fólki hérna en síðustu daga þá er það energy boost,\" sagði Birkir og vísaði í þann mikla fjölda fjölmiðlamanna sem voru á æfingasvæði Íslands í Annecy í dag.

Næsta verkefni Íslands er á sunnudag þegar liðið mætir Frökkum í 8-liða úrslitum EM.

„Þeir eru með gríðarlega góða einstaklinga og við þurfum að vera með allt á hreinu ef við ætlum að fá eitthvað úr þeim leik. Við byrjum að leikgreina þá í kvöld og verðum klárir.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.