30.07.05 - 13:32
Jesper Grönkjær til Stuttgart (Staðfest)

Jesper Grönkjær

Jesper Grönkjær

Enn er Danski kantmaðurinn Jesper Grönkjær á ferð og flugi nn nú er hann kominn til þýska liðsins Stuttgart eftir misheppnaða dvöl á Spáni hjá Atletico Madrid. Grönkjær fór frá Chelsea til Birmingham og þaðan til Atletico en á tveim síðarnefndu stöðunum var hann í aðeins eitt tímabil.
"Það var ekki auðvelt að taka þessa ákvörðun en tilboðið frá Þýskalandi var mjög áhugavert og kannski verður lifið auðveldara þar en hér á Spáni" sagði Grönkjær við heimasíðu Atletico. "Ég tala þýsku og menningin þar svipar til Danmerkur. Þá verð ég einni mun nær fjölskyldunni minni sem er mér mjög mikilvægt."
Spænska dagblaðið Marca greindi frá því í morgun að kaupverðið á Grönkjær væru litlar sex milljónir Evra en hann er 27 ára gamall. Samkvæmt heimildum borguðu Atletoco aðeins tvær milljónir fyrir Grönkjær þegar hann kom frá Birmingham.
Þrátt fyrir ágætis byrjun á ferli sínum á Spáni urðu meiðsli til þess að hann gat ekki spilað mikið og er því á útleið núna. Atletico höfðu þegar keypt mann í hans stað, Luciano Galletti frá Real Zaragoza.