Fotbolti.net
30.07.21 - 19:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pétur Péturs: Eiður á mikið hrós skilið fyrir þetta

Auglýsing
Eiður Ben og Pétur.

Eiður Ben og Pétur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Pétur Pétursson, annar þjálfara Vals, var kampakátur þegar hann mætti í viðtal eftir 5-1 sigur sinna stúlkna gegn Fylki í Pepsi Max-deildinni í kvöld.
Valskonur sýndu mikinn karakter eftir að hafa lent undir snemma leiks.

„Ég er ánægður með sigurinn. Við spiluðum þetta vel og fengum mikið af færum, sérstaklega í fyrri hálfleik," sagði Pétur eftir leikinn í Árbænum.

„Það var allt í einu komið 1-0 fyrir Fylki. Mér fannst stelpurnar bregðast mjög vel við því. Þær gerðu þetta vel það sem eftir var."

Toppliðið var að mæta botnliðinu. Er erfitt að koma inn í svona leik?

„Fylkisliðið er fyrir mér ekkert botnlið. Það er alltaf erfitt að spila á móti Fylki og ég hef enga trú á þær að falli."

Mist Edvardsdóttir skoraði tvennu; bæði mörkin úr hornspyrnum beint af æfingasvæðinu. „Þetta er sett upp af Eiði (Ben Eiríksson, þjálfara Vals). Eiður á mikið hrós skilið fyrir þetta. Við höfum æft þessar hornspyrnur meira í sumar en áður."

Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.