30.07.26 - 18:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arftaki Henderson á leið í læknisskoðun hjá Brentford


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Lens hefur samþykkt 41 milljón punda tilboð Brentford í miðjumanninn Mamadou Sangare. Sky Sports greinir frá.
Sangare er 24 ára en hann er á leið til Bretlands til að ganga undir læknisskoðun.
Sangare er 24 ára en hann er á leið til Bretlands til að ganga undir læknisskoðun.
Hann verður næst dýrasti leikmaður í sögu félagsins á eftir Dango Ouattara sem gekk til liðs við félagið frá Bournemouth í fyrra.
Sangare kemur til með að fylla skarð Jordan Henderson sem rifti samningi sínum við félagið á dögunum. Hann er á leið til Chelsea.
Sangare kemur til með að fylla skarð Jordan Henderson sem rifti samningi sínum við félagið á dögunum. Hann er á leið til Chelsea.
