30.07.26 - 17:30
Sverrir Örn Einarsson
Byrjunarlið Vals í Bosníu: Patrick Pedersen byrjar

342 dagar eru síðan Patrick Pedersen var síðast í byrjunarliði Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

342 dagar eru síðan Patrick Pedersen var síðast í byrjunarliði Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn eru staddir í Bosníu þar sem þeir mæta liði Zrinjski Mostar í síðari viðureign liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Valsmenn leiða 1-0 eftir fyrri leik liðanna á Íslandi og eygja þeir því möguleika á að komast áfram í þriðju umferð. Chris Brazell þjálfari þeirra hefur opinberað byrjunarlið sitt og má sjá það hér að neðan.
Dagur Orri Garðarsson og Shkelzen Veseli fá sér sæti á varamannabekk Vals frá fyrri leiknum fyrir viku. Inn í þeirra stað koma Markus Lund Nakkim og Patrick Pedersen inn í liðið en Patrick er að leika sinn fyrsta leik í byrjunarliði síðan hann sleit hásin í bikarúrslitum í fyrra.
Byrjunarlið Vals
1. Frederik Schram (m)
4. Markus Lund Nakkim
8. Jónatan Ingi Jónsson
9. Patrick Pedersen
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson (f)
14. Albin Skoglund
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
22. Birkir Heimisson
24. Myles A Veldman
28. Samúel Kári Friðjónsson
Byrjunarlið Vals
1. Frederik Schram (m)
4. Markus Lund Nakkim
8. Jónatan Ingi Jónsson
9. Patrick Pedersen
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson (f)
14. Albin Skoglund
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
22. Birkir Heimisson
24. Myles A Veldman
28. Samúel Kári Friðjónsson
